Cool Racing
Fylgdu þessum skrefum til að spila leikinn
Notaðu örvatakkana til að stýra bílnum.
Upp - Bensíngjöfin
Niður - Bremsa
Vinstri/hægri - Stýrið
Fylgstu með hraðanum, þegar hann er kominn á rauða strikið gæti bíllinn byrjað að renna til í beygjum.
Lýsing
Ert þú hraðskreiðasti ökumaðurinn? Sýndu það í Cool Racing! Kappakstursleikur þar sem þú keppir um besta tímann á hverjum hring. Þú getur valið á milli 3 mismunandi bíla. "Draugabíll" sýnir besta tímann þinn hverju sinni. Á miklum hraða rennur bíllinn til í beygjunum.
Leikurinn inniheldur 4 brautir og þú getur skráð besta tímann þinn á topplistann.
Þú getur unnið þér inn afrek ef þú nærð góðum tímum.








